Reikistjörnurnar í sólkerfinu okkar skiptast í Innri reikistjörnur og Ytri reikistjörnur. Ytri Reikistjörnurnar eru
fjær sólinni en þær innri. Ytri reikstjörnurnar eru: Júpiter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus.
fjær sólinni en þær innri. Ytri reikstjörnurnar eru: Júpiter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus.
Júpíter
Júpíter er fimmta og stærsta reikistjarnan í röð frá sólu. Júpíter er gasrisi sem
er að mestu leiti úr Vetni (71%) og Helíum (24%). Það tekur hann 4331,6 jarðar-daga að fara hring um sólina og snúningstími er 9 klst. og 50 mín. Hann hefur fleiri en 67 tungl, þ.á.m. Íó, Evrópu og Kallistó. Júpíter er nefndur eftir Höfuð-guði Rómverja , Júpíter.

Satúrnus
Satúrnus er sjötta og næst stærsta reikistjarna sólkerfisins. Hann er gasrisi eins og Júpiter og er mest gerður úr Vetni (96,3%) og Helíum (3,3%). Satúrnus hefur þykkan lofthjúp sem er um 1000 km að þykkt. Hann hefur a.m.k. 61 fylgitung þ.á.m. Mímas og Enkeladus. Hann er nefndur í höfuðið á landbúnaðar- og uppskeruguði Rómverja Satúrnusi.
Úranus
Úranus er sjöunda reikstjarnan í röð frá sólu og þriðja stærsta. Hann er eins konar vatnsrisi eins og en á Úranusi er mikill kuldi svo að mikill hluti gas-tegunda eru í föstu formi. Það tekur Úranus 84,3 jarðarár að fara einn hring um sólina en 17,5 klst. að snúast um sjálfan sig. Úranus hefur a.m.k. ellefu hringi sem voru ekki uppgötvaðir fyrr en árið 1977.
Neptúnus
Neptúnus er áttunda reikistjarnan í röð frá sólinni og fjórða stærsta. Hann er vatnsrisi eins og Úranus og er að mestu úr Vetni, Helíum og vatni. Neptúnus hefur 13 þ.á.m. Tríton. Það var Le verrier sem stakk upp á nafninu Neptúnus
og var það síðan samþykkt árið 1846.
og var það síðan samþykkt árið 1846.